9.11.2008 | 05:08
Skuldir örfárra manna strikaðar út - hvenær enda þessi ósköp?!
Engin furða þótt eggjum hafi rignt yfir Alþingishúsið og slagsmál hafi brotist út, fólk er reitt vegna þess að skuldir örfárra manna voru strikaðar út, og Geir H. Haarde, hvað með okkur Jónana og Gunnurnar, eigum við að láta ykkur vaða yfir okkur. Nei, nú eigið þið að segja af ykkur strax!!! Burt með ykkur!!!
8.11.2008 | 10:47
Erfiðir tímar - stöndum saman.
Fyrir 7 árum síðan (16 ára) greindist ég með þunglyndis- og kvíðaröskun og áráttuþráhyggju, og þurfti þar með að leggjast inn á Barna - og unglingageðdeild Landspítalans, sem var þungt skref og grátlegt, ég man ennþá eftir þegar ég féll saman og hágrét. En nú stend ég uppi sem sigurvegari og reynslunni ríkari, þannig að ég veit hvernig litla manninum líður. En ég ætla ekki að velta mér upp úr leiðindum fortíðarinnar, heldur gefa gjaldþrota fjölskyldum góð ráð í miðri krepputíð og hefst nú færslan:
Ráð 1: Ef barninu líður illa út af æsifréttum undanfarna daga, t.d. stikkorð eins og ,,hrun", talið þá við þau og segið að húsið þeirra sé ekki að hrynja.
Ráð 2: Gerið ykkur glaðan dag, eins og t.d. að fara út á vídeóleigu og leigið góða teiknimynd.
Og að endingu:
Ráð 3: Biðjið kvöldbænirnar með börnunum.
Cristiano Ronaldo var á dögunum valinn Besti leikmaður heims af knattspyrnutímaritinu Fourfourtwo og fékk hann gullskóinn að launum. Eru þetta ekki góð tíðindi í miðri efnahagskreppunni sem skekur Frónið um þessar mundir. Ég held það, en hvað með ykkur? Látið ykkar álit í ljós í gestabókinni.
En lumið þið á einhverjum góðum tíðindum af ykkur eða einhverju. Farið í gestabókina og komið með þau?
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 09:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar